Sigurður Ingi Lúðvíksson, sem staddur er í borginni Pattaya í Taílandi, lenti í alvarlegu mótorhjólaslysi í síðustu viku. Hann liggur slasaður á Bangkok Pattaya Hospital en er nú talinn úr lífshættu.
Sigurður Ingi var ásamt tveimur félögum sínum á mótorhjólarúnti á þjóðvegi skammt utan borgarinnar þegar hann ákvað að beygja af veginum inn á hliðarveg. Hann var á lítilli ferð og beið eftir bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Þegar bílinn var farinn framhjá ákvað Sigurður Ingi að halda af stað en þá birtist pallbíll úr gagnstæðri átt sem leynst hafði fyrir aftan hinn bílinn. Hann náði að sveigja frá en pallhorn bílsins skall á honum með miklum þunga. Hornið gerði gat á brjóstvegg með þeim afleiðingum að sex rifbein brotnuðu og lungun féllu saman.
Bílstjóri pallbíllsins og vinir Sigurðar Inga tóku þá ákvörðun að bíða ekki eftir aðstoð, líkt og oft er boðað, heldur koma honum þegar í stað á spítala. Þannig var ekið með hann á pallinum og þegar á spítalann var komið var þeim tjáð að Sigurður Ingi hefði líklega ekki lifað í tíu mínútur til viðbótar hefði hann ekki komist strax undir læknishendur. Hann liggur nú á spítala og er á batavegi.
„Það munaði litlu að ég hefði farið yfir móðuna miklu en sem betur fer fóru þeir með mig á spítalann tímanlega. Læknirinn segir að ég hefði ekki mátt koma 10 mínútum síðar því þá hefði farið verr. Ég er núna að ná mér en auðvitað er þetta erfið lífsreynsla,“ segir Sigurður Ingi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun