Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun var meðal annars rædd rannsókn skattalagabrota í tengslum við bankahrunið. Fram kom í máli Steingríms J. Sigfússonar og Jóhönnu Sigurðardóttur að fundinum loknum að rannsókn á þessum brotum hefði leitt í ljóst að tekjur sem nema hundruð milljörðum króna hafi ekki verið taldar fram til skatts í bankakerfinu.
Aðallega sé um að ræða tekjur vegna afleiðuviðskipta með hlutafé og gjaldeyri.
Fjármálaráðherra segir mikilvægt að frumvarp um heimild til að fyrsta eignir verði afgreitt í þinginu til að tryggja að hægt verði að sækja þessa peninga.
Til að fylgja eftir þessum málum stendur til að efla embætti skattrannsóknarstjóra og sérstakur 20 manna hópur verður skipaður.
Jóhanna nýtti tækifærið til að skjóta á Sjálfstæðisflokkinn þegar hún benti á að tvívegis áður hefðu farið fram úttektir sem sýndu fram á að taka þyrfti til hödnunum í rannsókn á undanskotum sem þessum. Síðasta úttektin hafi verið gerð fyrir fimm árum en henni var ekki fylgt eftir.
Sagði Jóhanna að svo virtist sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki haft áhuga á að fylgja þeim eftir.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna