Annabels-klúbburinn, þar sem bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynirog Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, fögnuðu því að nauðasamningar Bakkavarar hefðu verið samþykktir, er frægasti einkaklúbbur Lundúnaborgar.
„Þetta er bara eins og annað í Mayfair. Þú hreyfir þig ekki þar fyrir minna en ég veit ekki hvað. Þú færð ekki hótelherbergi fyrir minna en 300 pund á nóttu,“ segir heimildarmaður DV en menn þurfa að vera meðlimir í klúbbnum til að komast þangað inn eða þá að vera með einhverjum sem er meðlimur.
Upphaflega er Annabels breskur karlaklúbbur af gamla skólanum en hlutverk hans hefur breyst í seinni tíð.
Er oft fjallað um hann í slúðurpressunni bresku þegar einhverjir þekktir einstaklingar láta sjá sig þar. Má þar nefna fígúrur eins og Paris Hilton, Gerri Halliwell, Kate Moss og fleiri slíkar stjörnur.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna