Það gerist oft að íþróttamenn meiðist hvort heldur sem þeir eru atvinnu- eða áhugamenn í sportinu. Það er hins vegar ekki á hverjum degi að forsætisráðherrar stíga út fyrir hið pólitíska svið og sendi meiddum þjóðarstjörnum heillaóskir. En það gerði Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, eftir að ljóst var að David Beckham hefði meiðsl illa og myndi að öllum líkindum missa af Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í sumar.
Beckham sleit hásin í leik með AC Milan um helgina og gekkst undir skurðaðgerð í Finnlandi í gær.
Sky-fréttastofan greinir frá því í dag að meðal þeirra sem sent hafi Beckham hughreystandi heillaóskir sé Gordon Brown. Heimildarmaður Sky segir að innihald bréfsins sé trúnaðarmál en að Beckham hafi þótt vænt um að fá orðsendinguna.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung