ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE

Hagfræðingur missti 15 kíló á BSÍ-kúrnum

21:00 › 16. mars 2010
Guðmundur segir að líkaminn sé mun betur settur með því að borða íslenskt.

Guðmundur segir að líkaminn sé mun betur settur með því að borða íslenskt. Rakel Ósk

Guðmundur Ólafsson hagfræðingur hefur sjaldan litið betur út en núna enda búinn að missa 15 kíló. Guðmundur er á svokölluðum BSÍ kúr sem góðvinur hans, Haraldur heitinn Blöndal, bjó til sem gengur út á að borða íslenskt - já takk.

„Kúrinn virkar þannig að þegar líkaminn fær góðan alvöru íslenskan mat þá segir hann „Það er ekki von á neinni kreppu og vandræðum þannig það er ekki ástæða til að leggja fyrir.“ Hann losar sig þá við gamlar birgðir. En ef þú étur eitthvað drasl þá segir líkaminn „Það er bara kreppa og hleður upp spiki,“ segir Guðmundur Ólafsson hagfræðingur sem sprangar nú um göturnar í betra formi en oft áður enda búinn að missa heil 15 kíló.

Guðmundur sem er lektor í hagfræði við Háskóla Íslands og einnig lektor við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst, fer á Umferðarmiðstöðina og fær sér að borða íslenskan mat sem þar er á boðstólnum - eins og Erlendur gerir í bókum Arnaldar. „Ef maður borðar góðan mat og ekki alltof mikið af honum þá rennur þetta af manni,“ segir Guðmundur hress og kátur.

Hugmyndasmiður kúrsins góða er Haraldur heitinn Blöndal góðvinur Guðmundar. „Hann hafði þessa kenningu og við vorum nú oft búnir að ræða þetta okkar á milli - að gera þetta. Við vorum oft búnir að reyna að megra okkur en það gekk aldrei því við fórum alltaf vitlaust í þetta. Nú fer ég rétt í þetta og þegar hungrið kallar þá fer ég á BSÍ og fæ mér að borða. Borða passlega og ekki vera að rífa í sig,“ segir Guðmundur saddur enda nýbúinn að klára alvöru íslenskan mat.

Guðmundur gengur einnig til að auka brennsluna og er líka með megrunarbréfaskólann. „Það er eitt bréf með einni setningu. Þar stendur; Hættu að éta eins og svín - skeppnan þín.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.