Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Borgarstarfsmenn í Detroit í Bandaríkjunum hafa verið beðnir vinsamlegast um að vera ekki með ilmvatn, rakspíra eða aðra ilmgjafa í vinnunni.
Starfmaður borgarinnar höfðaði mál gegn ríkinu árið 2008 sem nú hefur náðst sátt um. Konan fékk 100 þúsund dollara skaðabætur eftir að hafa haldið því fram að sterk ilmvatnslykt samstarfskonu sinnar hindraði sig í að vinna vinnuna sína.
Yfirvöld hafa komið upp viðvörunarskiltum í þremur opinberum byggingum í Detroit þar sem starfsmenn eru vinsamlegast beðnir um að halda sig frá ilmvötnum, rakspírum, svitalyktareyðum, líkamsolíum, ilmkertu og öðrum ilmgjöfum. Það verður því náttúrulegur ilmur í opinberum byggingum Detroit á næstunni svo mikið er víst.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung