ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Uppboð á kvennastörfum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:07 › 15. mars 2010
Rithöfundurinn og leikskáldið Þórdís Elva, í mjallahvítum bol, og sjö af öðlingunum.

Rithöfundurinn og leikskáldið Þórdís Elva, í mjallahvítum bol, og sjö af öðlingunum.

Hópur sem kallar sig Öðlingarnir efnir til uppboðs til styrktar Neyðarmóttöku vegna nauðgana á Grand Hotel í Reykjavík á miðvikudaginn. Öðlingarnir eru meðal annarra Rúnar Kristinsson knattspyrnumaður, Karl Sigurðsson Baggalútur, Snorri Ásmundsson myndlistarmaður og Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi), leikari og sjónvarpsmaður.

Á (upp)boðstólum verða til að mynda knattspyrnutreyja frá ferli Rúnars Kristinssonar, uppákoma á vegum hljómsveitarinnar Baggalúts og hefðbundin „kvennastörf“. Uppboðið er um leið lokaathöfn þeirra Öðlinga sem hleyptu átakinu af stokkunum en eru nú búnir að skila því í hendur nýrra kyndilbera.

Við þetta tækifæri hlýtur einn þeirra nafnbótina Öðlingurinn 2010 fyrir að hafa vakið mesta athygli á málsstaðnum, en markmið átaksins er að berjast gegn kynbundnu ofbeldi. Aukin fræðsla er vopn í þeirri baráttu og þess vegna selja öðlingarnir bókina Ofbeldi á Íslandi: Á mannamáli eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur. Allur ágóði þeirrar sölu fer til Neyðarmóttökunnar og í söfnunarsjóð vegna samstöðufundar gegn kynbundnu ofbeldi sem haldinn verður á kvennafrídaginn 25. október nk. 



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.