ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

„Þetta var nú ekki gjöf til Jóns Ásgeirs“

07:30 › 15. mars 2010
Lögmaður Jóns Ásgeirs segir að milljarðurinn hafi ekki verið gjöf til hans.

Lögmaður Jóns Ásgeirs segir að milljarðurinn hafi ekki verið gjöf til hans.

Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður segir að milljarðurinn sem eignarhaldsfélag Pálma Haraldssonar, Fons, lagði inn á persónulegan tékkareikning Jóns Ásgeirs Jóhannessonar sumarið 2008 hafi ekki verið gjöf til Jóns Ásgeirs.

„Þetta var nú ekki gjöf til Jóns Ásgeirs. Enda held ég að engum hefði dottið í hug að gefa Jóni Ásgeiri einn milljarð,“ segir Sigurður G. Þrotabú Fons hefur stefnt Jóni Ásgeiri á þeim forsendum að milljarðurinn frá Fons til Jóns Ásgeirs hafi verið gjafagerningur og vill skiptastjórinn, Óskar Sigurðsson, rifta greiðslunni.
Sigurður G. er lögmaður Jóns Ásgeirs í málinu en stefnan í því var þingfest þann 25. febrúar síðastliðinn. Stefnan er ein af 10 stefnum þrotabús Fons sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur þennan dag.

Sigurður G. segir að milljarðurinn hafi verið hluti Fons af sameiginlegri fjárfestingu félagsins og eignarhaldsfélags í eigu Jóns Ásgeirs, Þú Blásól ehf., í formúluliðinu Williams. Pálmi Haraldsson og Jón Ásgeir voru viðskiptafélagar á árunum fyrir hrunið og fjárfestu meðal annars í ýmsum verslunum í Bretlandi, til dæmis í Hamleys-leikfangabúðakeðjunni og Iceland-keðjunni.

Sigurður segir aðspurður að milljarðurinn frá Fons hafi verið notaður til að greiða fyrir auglýsingasamning Hamleys við Williams-liðið, Jón Ásgeir hafi svo lagt til sinn hluta af fjárfestingunni í gegnum Þú Blásól. „Þessir peningar fóru til Williams-liðsins þar sem Hamleys auglýsti á formúlubílunum þeirra og flutningatækjum. Þessum peningum var því bara ráðstafað í verkefni sem félög á þeirra vegum höfðu staðið í, og stóðu í allt til loka árs 2008,“ segir Sigurður G. sem einnig gætir hagsmuna Pálma í einhverjum af þeim málum sem þrotabú Fons hefur höfðað gegn honum persónulega.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.