Líklegt er að Davíð Oddsson hafi ráðið því sem hann vildi við fall bankanna og verið æðstráðandi yfir ferli sem reyndar fór úr böndunum.
Richard Thomas sérfræðingur hjá greiningardeild Merrill Lynch fjárfestingarbankanum spáði glögglega fyrir um hrun íslensku bankanna meira en tveimur mánuðum áður en þeir féllu.
Í skýrslu um Ísland taldi Thomas nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld gerðu grein fyrir mögulegum aðgerðum sínum. En vel væri einnig hugsanlegt að stjórnvöld hefðu hreinlega hugsað sér að keyra einn banka eða fleiri í gjaldþrot og þjóðnýta þá aftur svo skömmu eftir einkavæðingu.
Stjórnvöld og bankamenn fordæmdu yfirlýsingar Thomas og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þáverandi menntamálaráðherra spurði opinberlega hvort hann þyrfti ekki á endurmenntun að halda.
Ljóst er að markaðurinn, þar á meðal Merrill Lynch, tók eftir aðgerðaleysi Seðlabanka Íslands sem gat bent til þess að þegar á þessum tíma hafi verið uppi viðbragðsáætlun sem fól í sér gjaldþrot og / eða þjóðnýtingu eins eða fleiri banka. Thomas benti meira að segja á að sú aðgerð hefði einnig kosti þar sem gjaldþrot flytti mesta skellinn frá íslenskum skattgreiðendum fyrir til erlendra lánardrottna.
Vitað er að drög að neyðarlögum og viðbragðsáætlun við mögulegu greiðsluþroti bankanna hafði verið undirbúin í stjórnkerfinu. Líkur eru því til þess að falli bankanna hafi verið stýrt, einkum af Davíð Oddssyni þáverandi Seðlabankastjóra, en allt farið úr böndunum, meðal annars vegna fátæklegra tækja til frekari aðgerða, meðal annars við harkalegum viðbrögðum Breta.
Nánar í DV í dag.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ