Arion banki stefnir Stefáni Hilmari Hilmarssyni, fyrrverandi fjármálastjóra Baugs, vegna skuldar sem nemur tugum milljóna króna. Skuldin er tilkomin vegna vangreiddra lána sem tekin voru í erlendri mynt. Verjandi Stefáns segir skuldirnar ekki tengjast Baugi. Líklegt er að málinu verði frestað þar til Hæstiréttur kveður upp úrskurð um lögmæti erlendra lána.
Fyrirtaka var í málinu í héraðsdómi á mánudag í síðustu viku, en því hefur verið frestað. Annað lánið sem bankinn stefnir Stefáni fyrir er erlendur lánssamningur.
Að sögn Karls Georgs Sigurbjörnssonar, verjanda Stefáns Hilmars, tengjast lánveitingarnar ekki Baugi. Hann segir enn fremur í samtali við DV að þær séu minniháttar. Málið kann að frestast þar til Hæstiréttur úrskurðar um lögmæti erlendra lána sem bankar og fjármögnunarfyrirtæki buðu, en dómstólar í landinu hafa frestað mörgum skuldamálum þangað til niðurstaða Hæstaréttar verður ljós. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu í janúar að myntkörfulaun Lýsingar hefðu verið ólögleg á sínum tíma.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna