Ekkert þokast áfram í kjarabaráttu starfsmanna Norðuráls, sem hafa frá því í október á síðasta ári fundað með yfirmönnum félagsins um að jafna launakjör þeirra við þau kjör sem bjóðast í öðrum álverum.
Norðurál vill hins vegar ekki bjóða neina launahækkun nema 4,5 prósent í bónusgreiðslur til fimm ára. Samkvæmt heimildum DV innan Norðuráls er mikil reiði meðal starfsmanna vegna málsins.
Yfirtrúnaðarmaður starfsmanna var settur af í miðri kjarabaráttu, þar sem hann fór fram á fjölmiðlabann eftir fréttaflutning DV af málefnum Norðuráls. Það vakti óánægju meðal annara trúnaðarmanna sem settu hann af.
Starfsmaður Norðuráls, sem DV ræddi við, segir langlundargeð starfsfólksins senn á þrotum. Gróði fyrirtækisins sé mikill og það hafi bitnað mikið á móralnum að ekki hafi verið hægt hækka launin. Starfsmenn Norðuráls séu að meðaltali með um 17 prósent lægri laun en gengur og gerist í öðrum álverum. Starfsfólk Norðuráls skoði nú hvort það hafi verkfallsrétt. Aldrei áður hafi lætin innan fyrirtækisins verið meiri.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir í samtali við DV að kröfur starfsmanna Norðuráls séu sanngjarnar. „Við erum búnir að funda hjá ríkissáttasemjara frá því í október og erum aðeins að fara fram á að launakjör starfsmanna Norðuráls verði þau sömu og hjá hinum. Fram til þessa hefur félagið sýnt afskaplega lítinn samningsvilja að okkar mati. Það er frekar dökkt yfir,“ segir hann.
Hann segir að munur á launum starfsmanna Norðuráls og annarra álvera nemi tugum þúsunda króna á mánuði. Næsti fundur í samningaviðræðunum er á mánudag.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
