ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Sorg vegna sjálfsvíga

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
05:29 › 15. mars 2010

Á skömmum tíma hafa tvö ungmenni, tólf og sextán ára, svipt sig lífi í Hafnarfirði þar sem að minnsta kosti í öðru tilvikinu hafði viðkomandi orðið fyrir langvarandi einelti í skóla, án þess að einelti hafi verið úrskurðað sem orsök sjálfsvígsins. Sorg ríkir í Hafnarfirði enda fólki brugðið þegar tvö ungmenni falla frá með svo sviplegum hætti.

„Þegar áföll eiga sér stað í lífi ungmenna verðum við að fylgjst sérstaklega vel með þeim og það á líka við í skólanum þar sem þau verja miklum tíma í hverri viku. Þá er ákveðin hætta á því að sé einelti ekki tekið alvarlega geti það leitt til sjálfsvígs. Það er engin spurning og það höfum við séð,“ segir Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur.

Á skömmum tíma hafa tvö ungmenni, tólf og sextán ára, svipt sig lífi í Hafnarfirði þar sem að minnsta kosti í öðru tilvikinu hafði viðkomandi orðið fyrir langvarandi einelti í skóla, án þess að einelti hafi verið úrskurðað sem orsök sjálfsvígsins. Þeir sérfræðingar sem DV leitaði til benda aftur á móti á einelti sem orsakaþátt sem verði að taka mjög alvarlega. Þegar verst lætur geti þunglyndi, sem af einelti getur skapast, leitt til sjálfsvígstilrauna ungmenna.

Skóla- og félagsmálayfirvöld í Hafnarfirði biðja foreldra í bænum að fylgjast sérstaklega með líðan og hegðun barna sinna, til að mynda samskiptum í gegn netsíður. Það gerir Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir líka því oft hafi ungmenni sem svipta sig lífi minnst á þann möguleika áður.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.