ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Sjóðandi ást Heiðu í Nikita?

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:00 › 15. mars 2010
  • Aðalheiður Birgisdóttir, a.k.a. Heiða í Nikita.

    Aðalheiður Birgisdóttir, a.k.a. Heiða í Nikita.

Aðalheiður Birgisdóttir, betur þekkt sem Heiða í Nikita, virðist hafa fundið ástina á ný. Heiða og barnsfaðir hennar og fyrrverandi sambýlismaður, Rúnar Ómarsson, slitu samvistum fyrir nokkrum misserum en þau stofnuðu hið farsæla hönnunarfyrirtæki Nikita fyrir um áratug. Orðið á götunni er að Amor hafi skotið örvum sínum í Heiðu og Egil Tómasson sem stundum er kenndur við hljómsveitina sálugu Soðna fiðlu. Þau hafa sést nokkuð oft saman undanfarnar vikur, þar á meðal á Menningarverðlaunum DV í Iðnó í síðustu viku en Nikita var þar tilnefnt til verðlauna í flokki hönnunar.

Eins og kemur fram í nýjasta tölublaði Séð og heyrt virðist Rúnar einnig á vegum ástarinnar nú um stundir, með Ástu Kristjánsdóttur í E-Label.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.