ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Rússarnir eru ekki að koma, fölsuð frétt veldur usla

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:56 › 15. mars 2010
Frá innrás Rússa í Georgíu fyrir tveimur árum.

Frá innrás Rússa í Georgíu fyrir tveimur árum.

Yfirmaður georgísku sjónvarpsstöðvarinnar Imedi neitar að segja af sér eftir að stöðin birti frétt á laugardagskvöldið sem olli glundroða í landinu. Í fréttinni var fullyrt að Rússar væru að ráðast inn í landið og hefðu myrt forseta Georgíu. Fréttastofan hefur viðurkennt að fréttin sé fölsuð.

Stjórnmálamenn í Georgíu hafa fordæmt fréttaflutninginn á meðan stjórnarandstaðan sakar ríkisstjórnina um að vera á bak við uppátækið. Mótmælendur fjölmenntu á götur úti og aðrir borgarar fengu hreinlega áfall.

Við fréttvinnsluna voru birtar upptökur af innrás Rússa í Georgíu í ágúst 2008 þar sem hundruð týndu lífi. Sú innrás er Georgíumönnum enn í fersku minni og því skiljanlegt að þeim hafi ekki litist á blikuna við fréttirnar.

Giorgi Arveladze, yfirmaður Imedi-stöðvarinnar sem er einkarekin, baðst afsökunar á að hafa valdið fólki áfalli með hinni fölsuðu frétt. Það hafi ekki verið ætlunin heldur fremur að fjalla um öryggismál þjóðarinnar sem mörgum þykir í lamasessi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.