ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Óskaði dóttur sinni dauða

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:45 › 15. mars 2010
Katrín Lilja þjáðist af alvarlegu meðgönguþunglyndi.

Katrín Lilja þjáðist af alvarlegu meðgönguþunglyndi. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson

Þegar Katrín Lilja Ævarsdóttir gekk með fimmta barn sitt, dótturina Bríeti, þjáðist hún af alvarlegu meðgönguþunglyndi og hugsaði stöðugt um dauðann. Hún bloggaði um litlu slysabaunina sína, eins og hún kallaði barnið, mörgum til hneykslunar. Katrín vonast til þess að saga hennar opni fyrir umræðu um meðgönguþunglyndi sem hún segir lítið sem ekkert vera talað um.

Þetta kemur fram í forsíðuviðtali Vikunnar.

Katrín Lilja Ævarsdóttir leikskólakennari átti fjóra syni þegar hún varð ófrísk að dótturinni sem verður tveggja ára í júní. Hún fann fyrir meðgönguþunglyndi þegar hún gekk með eldri börn sín en aldrei eins og nú, enda voru aðstæður hennar aðrar.

„Ég varð ófrísk eftir mann sem hafði ekki sagt mér rétt um hjúskaparstöðu sína og ég komst að því snemma á meðgöngunni,“ segir Katrín. „Þessi maður, sem býr ekki í sama sveitarfélagi og ég, bað mig um að halda því leyndu hver hann væri og ég lifði í lygi í fjóra mánuði. Það var mjög erfitt og ýtti án efa undir þunglyndið. Ég skammaðist mín fyrir að hafa trúað honum.“

„Ég fann fyrir erfiðum hugsunum á meðgöngunni og leið langverst frá þriðja mánuði til sjöunda mánaðar. Ég átti mjög erfitt með að tengjast barninu og vanlíðanin ágerðist. Ég var mjög ósátt við að vera ófrísk, kringumstæðurnar voru svo ömurlegar, það var svo mikil skömm að vera ófrísk eftir mann sem var í sambúð og ég var þá nýflutt á lítinn stað, Suðureyri við Súgandafjörð. Ég hélt að almenningsálitið þar myndi ganga frá mér. Ég byrjaði að skrifa bloggið mitt sem var nafnlaust í fyrstu og ég skrifaði fyrir hönd barnsins. Þetta hófst reyndar í gríni en varð síðan fúlasta alvara. Þegar ég opinberaði mig og sagði hver ég væri fann ég aðeins fyrir stuðningi í heimabæ mínum, fólk trúði minni hlið málsins og fordæmdi mig ekki.
Ég vissi að ég væri í áhættuhópi vegna meðgönguþunglyndis og mín var t.d. gætt mjög vel þegar ég gekk með annan strákinn minn. Arnar Hauksson var læknirinn minn þá og áttaði sig á því hvað væri í gangi. Hann bjó til öryggisnet í kringum mig án þess að ég vissi. Ég tók síðan sjálf eftir þessu þegar þriðji strákurinn minn var á leiðinni.“

„Þegar ég var ófrísk af Bríeti lét ég vita af þessu í mæðraskoðun. Ég talaði við lækni sem bauð mér upp á samtalsmeðferð eða lyf. Ég kaus lyf og síðan var ekkert meira talað við mig, engin eftirfylgni eða spurt hvort ég þyrfti lyf áfram. Heilbrigðiskerfið brást mér algjörlega. Ég var kannski of veik til að bera mig eftir björginni og þar sem mér fannst ég vera hunsuð ræddi ég þetta ekkert frekar.“

Opinskátt viðtal við Katrínu Lilju er að finna í Vikunni


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.