ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Margeir skuldar Byr milljarða

08:00 › 15. mars 2010
Stjórn Byrs hefur áhyggjur af skuldastöðu Margeirs Péturssonar í bankanum og hefur íhugað að leysa til sín hluta bréfa hans í MP Banka.

Stjórn Byrs hefur áhyggjur af skuldastöðu Margeirs Péturssonar í bankanum og hefur íhugað að leysa til sín hluta bréfa hans í MP Banka.

Margeir Pétursson, aðaleigandi og stjórnarformaður MP Banka, gæti misst eignarhlut sinn í bankanum vegna útistandandi skulda eignarhaldsfélaga í hans eigu við sparisjóðinn Byr, samkvæmt heimildum DV. Veðin fyrir lánunum er að hluta í í hlutabréfum félaganna í MP Banka.

Til tals hefur komið í stjórn Byrs að leysa til sín hluta af hlutabréfum Margeirs í MP Banka vegna þess að hann hefur meðal annars átt í erfiðleikum með að standa í skilum með vaxtagreiðslur af lánum sínum. Auk þess hefur verið deilt um verðmæti hlutabréfanna í MP Banka og hversu hátt eigi að verðmeta þau upp í skuldina við sparisjóðinn. Stjórnin hefur átt í viðræðum við Margeir út af skuldum félaganna. Þó mun ekki standa til að leysa bréfin til sín á næstunni en það mun vera einn af þeim möguleikum sem rætt hefur verið um í stjórninni.

Margeir á nærri 30 prósenta hlut í MP Banka í gegnum eignarhaldsfélögin Margeir Pétursson ehf. og Hraunbjarg ehf. Stærsti hlutur hans er inni í Margeir Pétursson ehf., tæp 22 prósent, og kemur fram í ársreikningi félagsins árið 2008 að rúmur helmingur bréfa Margeirs sé veðsettur hjá lánastofnunum út af skuldum félagsins.

Heimildir DV herma að heildarskuldir Margeirs og félaga hans við Byr nemi á milli 2 og 2,5 milljörðum króna. Í ársreikningi Margeirs Péturssonar ehf. kemur fram að skuldir félagsins við lánastofnanir nemi um 1.200 milljónum króna og að þær hafi verið á gjalddaga árið 2009. Stærstur hluti þessara skulda, tæpur milljarður króna, var í íslenskum krónum með 19 til 22 prósenta vöxtum og kemur fram í ársreikningnum að þessar skuldir hafi verið á gjalddaga í fyrra, árið 2009.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.