ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

„Ég er búin að missa allt“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:00 › 15. mars 2010
ZikZak óx hratt á tíma en síðan hrundi draumur fjölskyldunnar.

ZikZak óx hratt á tíma en síðan hrundi draumur fjölskyldunnar.

Berglind Ásgeirsdóttir, stofnandi ZikZak tískuhúsa, hefur farið frá því að reka hátt í tug vinsælla tískuvöruverslana yfir í að horfa fram á eigið gjaldþrot. Fyrirtæki hennar fór nýverið á hausinn og nam gjaldþrotið nærri 300 milljónum króna. Ekkert fékkst greitt upp í almennar kröfur og aðeins 8 prósent af forgangskröfum fengust greiddar.

„Ég er búin að missa allt. Allt. Ég er búin að tapa húsinu mínu, bílunum mínum og manninum mínum. Ég er sjálf á leið að verða gjaldþrota og bíð bara eftir hamrinum. Það er bara alveg ömurlegt,“ segir Berglind Ásgeirsdóttir, stofnandi ZikZak tískuveldisins.

Hjónin Berglind og Ómar Andrés Gunnarsson stofnuðu Zikzak tískhúsin fyrir um átta árum. Fyrirtækið er nú farið á hausinn. Í fyrra færðist reksturinn yfir í nýtt félag, 6870 ehf., þar sem Sigríður, ríflega tvítug dóttir Berglindar, fer fyrir stjórninni, er skráð framkvæmdastjóri og fyrir prókúru fyrirtækisins.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.