ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Barnaníðingar leggja niður flokkinn sinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:36 › 15. mars 2010
Flokki barnaníðinga gefst ekki færi á að tryggja sér sæti á hollenska þinginu.

Flokki barnaníðinga gefst ekki færi á að tryggja sér sæti á hollenska þinginu.

Hollenski stjórnmálaflokkurinnn sem stofnaður var af yfirlýstum barnaníðingum hefur ákveðið að leggja upp laupana eftir að hafa mistekist í annað skiptið að standast lágmarkskröfur til að geta boðið fram í þingkosningunum í landinu.

Flokkurinn, sem hafði það á stefnuskrá sinni að lækka samræðisaldurinn í 12 ára, náði ekki að tryggja sér 600 undirskriftir fyrir framboðið. Í ljósi þess var hæpið að flokkurinn næði inn manni því til þess yrði hann að fá 60 þúsund atkvæði í hollensku þingkosningunum.

Flokknum mistókst þetta sömuleiðis árið 2006 enda vakti stofnun flokksins hörð viðbrögð á alþjóðavettvangi.

Breska dagblaðið Independent greinir frá þessu í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.