ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Bakkabræður fögnuðu í breskum einkaklúbbi

07:05 › 15. mars 2010
Bræðurnir fögnuðu nauðasamningunum með Hreiðari Má Sigurðssyni en samkvæmt þeim geta þeir eignast fjórðungshlut í Bakkavör aftur.

Bræðurnir fögnuðu nauðasamningunum með Hreiðari Má Sigurðssyni en samkvæmt þeim geta þeir eignast fjórðungshlut í Bakkavör aftur.

Lýður og Ágúst Guðmundssynir, sem gjarnan eru kenndir við matvælafyrirtækið Bakkavör, fögnuðu því fyrr í mánuðinum á einkaklúbbnum Annabels í Mayfair í London að nauðasamningar Bakkavarar hefðu verið samþykktir. Bræðurnir eru báðir búsettir í Bretlandi. Með þeim í för var Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings og núverandi íbúi í Lúxemborg, ásamt fleiri Íslendingum sem ekki hafa verið nafngreindir.

Bræðurnir höfðu góða ástæðu til að fagna en með nauðasamningunum, sem samþykktir voru á kröfuhafafundi Bakkavarar þann 4. mars, munu þeir eiga möguleika á að eignast fjórðungshlut í félaginu aftur. Þeir bræður stofnuðu félagið á sínum tíma og eru kenndir við það. Hvort af þessu verður veltir hins vegar á því hvernig Bakkavör mun ganga að greiða niður himinháar skuldir sínar. Kröfuhafar Bakkavarar hafa eignast það að fullu en bræðurnir munu stjórna því áfram.

Ef nauðasamningarnir hefðu ekki verið samþykktir hefði Bakkavör verið tekið til gjaldþrotaskipta. Þá hefði þetta flaggskip þeirra bræðra heyrt sögunni til en í staðinn fá þeir að stjórna því áfram og geta eignast hlut í því aftur. Bræðurnir stofnuðu Bakkavör á níunda áratugnum ásamt föður sínum.

„Þeir voru á þessum stað þetta kvöld. Þeir einstaklingar sem ég veit að voru þarna eru bræðurnir tveir og Hreiðar Már,“ segir heimildarmaður DV sem þekkir til málsins. Hann segir að þeir hafi verið á Annabels að fagna nauðasamningnum Bakkavarar auk fleiri Íslendinga og einhverra útlendinga. Fleiri Íslendingar voru þó á staðnum þetta kvöld og báru einhverjir þeirra kennsl á Íslendingana þekktu. „Það vildi þannig til að það kom annar hópur Íslendinga þarna inn,“ segir heimildarmaður DV.

Annabels-klúbburinn er frægasti einkaklúbbur Lundúnaborgar að sögn heimildamanns DV og er oft fjallað um hann í slúðurpressunni bresku þegar einhverjir þekktir einstaklingar láta sjá sig þar. Má þar nefna fígúrur eins og Paris Hilton, Geri Halliwell, Kate Moss og fleiri slíkar stjörnur.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.