ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

Ætlar sér að verða feitasta kona heims

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:22 › 15. mars 2010
Simpson ætlar sér að verða feitasta kona heims.

Simpson ætlar sér að verða feitasta kona heims.

Hin 42 ára gamla Donna Simpson frá New Jersey í Bandaríkjunum hefur sett sér óvenjulegt markmið; hún ætlar sér að verða feitasta kona heims. Simpson vegur nú 273 kíló og á enn langt í land með að ná metinu, sem er um 500 kíló.

„Það væri æðislegt að vera 500 kíló. Það gæti þó orðið erfitt. Ég held þyngdinni niðri með því að eltast við dætur mínar á hverjum degi,“ segir hún en þegar hún eignaðist sitt þriðja barn var hún um 250 kíló. Varð hún þar með þyngsta kona heims til að eignast barn.

Simpson rekur vefsíðu þar sem fólk getur borgað fyrir að horfa á hana borða heilu kökurnar og kassana af kleinuhringjum. Þannig nær hún að eiga fyrir matarinnkaupum vikunnar sem er um hundrað þúsund krónur. Hvort Simpson nái að slá metið skal ósagt látið en metnaðurinn er að minnsta kosti til staðar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.