ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

„Æ oftar sammála formanni Sjálfstæðisflokksins“

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
15:20 › 15. mars 2010
Össur Skarphéðinsson

Össur Skarphéðinsson

  • Bjarni Benediktsson

    Bjarni Benediktsson

„Það gerist æ oftar að ég er sammála formanni Sjálfstæðisflokksins,“ sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra í upphafi þingfundar á Alþingi í dag.

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hafði krafið Össur svara um afstöðu Norðurlandanna til Icesavedeilunnar við Hollendinga og Breta og tengls þeirrar deilu við endurreisnaráætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Össur, sem hitti utanríkisráðherra Norðurlandanna fyrir fáeinum dögum, tók undir með Bjarna að það væri ómálefnalegt, óskynsamlegt og óréttlátt að skilyrða aðstoð AGS við lausn Icesavedeilunnar.
Báðir fögnuðu þeir breyttri afstöðu Norðmanna sem lýst hafa vilja til lánveitinga óháð lausn Icesavedeilunnar. Bjarni lýsti vonbrigðum yfir því að hin Norðurlöndin hefðu ekki einnig breytt afstöðu sinni.

Össur sagði að ríkisstjórnir hinna Norðurlandanna teldu sig bundnar af samþykktum þjóðþinganna í viðkomandi löndum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.