Jóhann R. Benediktsson telur nauðsynlegt að sérstök teymi einbeiti sér að rannsóknum á skipulagðri og alþjóðlegri glæpastarfsemi. Hann telur fjármagn vanta. Mynd Gunnar Gunnarsson
Jóhann R. Benediktsson, fyrrverandi sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, segir nauðsynlegt að huga að tvennu til að hægt sé að berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Í helgarblaði DV er að finna ítarlega úttekt um alþjóðlega glæpastarfsemi. Jóhann segir að það þurfi að hafa einangraða hópa innan lögreglu og tollgæslu til að berjast við starfsemi af þessu tagi.
„það þarf að hafa einangraða hópa innan lögreglu og tollgæslu sem hafa það verkefni eitt að berjast við þessa starfsemi. Eins og skipan lögreglu er í dag þá er ekki til fjármagn til að skipa slíka hópa sem einbeita sér að þessu verkefni eingöngu. Í öðru lagi er lagaramminn ófullnægjandi. Forvirkar rannsóknarheimildir sem leyniþjónusta eða öryggislögregla nota í öðrum löndum vantar.
Ég hef lengi haldið því fram að það þurfi þessar heimildir til að fylgjast með starfsemi sem talin er hættuleg fyrir þjóðarhagsmuni. Þessar heimildir höfum við ekki eins og öll önnur Vesturlönd og það eitt að við séum ekki með forvirkar rannsóknarheimildir gerir það að verkum að þessum hópum mun vaxa fiskur um hrygg hér á landi,“ segir Jóhann og bætir við:
„Ég sem sagt tel að aukið fjármagn sem geri lögreglu kleift að mynda teymi sem rannsaka hópa eða einstaklinga um langan tíma og forvirkar rannsóknarheimildir séu það mikilvægasta sem þarf í baráttuna gegn skipulagðri glæpastarfsemi.“
Áður hefur verið reynt að koma heimildum til forvirkra rannsóknarheimilda í gegnum Alþingi. „Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, sýndi þessum málum mjög mikinn skilning og ég tel núverandi dómsmálaráðherra gera það einnig. Ég held hins vegar að það hafi ekki náðst pólitísk sátt vegna þess að stjórnmálamönnum var ekki sýnt nógu mikið fram á nauðsyn þess að lögregla fengi þessar rýmri heimildir. Það er augljóst að stjórnmálamenn skortir ákveðinn skilning á þessum málum. Lögregla og dómsmálayfirvöld verða að fræða stjórnmálamenn um það hvers vegna þessi þörf er fyrir hendi,“ segir Jóhann.
johanneskr@dv.is





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir