ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Þingmaður segir af sér vegna 25 ára gamals hneykslis

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:35 › 14. mars 2010
Kevin Garn.

Kevin Garn.

Repúblikaninn Kevin Garn hefur sagt af sér vegna vegna þess að hann deildi heitum potti án klæða með fimmtán ára gamalli stúlku árið 1985. Garn var þrítugur á þeim tíma en stúlkan, Cheryl Maher, steig fram í sviðsljósið fyrir skömmu og lýsti þessu atviki.

Garn hefur viðurkennt að hann hafi vermt pottinn með stúlkunni og þau hafi bæði verið án klæða. Hann neitar því þó að þau hafi stundað kynlíf eða eitthvað tengt þeim verknaði. Þau hafi þó snerst og Garn segir það hafa verið dómgreindarleysi af sér að hafa vermt pottinn ásamt ólögráða stúlkunni árið 1985. Garn segist hafa borgað Maher, sem nú er fertug, 150 þúsund dollara fyrir að segja ekki frá atvikinu árið 2002 þegar hann reyndi að ná þingsæti.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.