Leikstjórinn Baltasar Kormákur býr á búgarði í Skafirði ásamt fjölskyldu sinni. Baltasar segir syni sína taka sveitalífinu rosalega vel. „Þeir eru orðnir sveitamenn, bara algjörir sveitavargar,“ segir hann og hlær.
„Einu sinni komum við í bæinn og fórum á Gráa köttinn. Annar strákanna fór úr skónum í anddyrinu og pantaði rjómapönnukökur. Þá vissi ég að þeir væru orðnir alvöru sveitamenn, þarna panta menn sér bara amerískar pönnukökur. Svo spurði hann mig einu sinni hvort það væru afleggjarar í Reykjavík. Það var vegna þess að í sveitinni mega þeir bara hjóla á afleggjaranum. Þeir eru orðnir alvöru sveitamenn,“ segir Baltasar og brosir breitt.
Á búgarði hjónanna er nóg af hestum en Baltasar hefur verið hestamaður alla sína tíð. „Pabbi minn var með hesta alveg frá því ég var barn og tveggja ára var ég farinn að príla upp á þá með því að skríða á girðingum. Konan mín, Lilja Pálmadóttir, er líka búin að vera á Hólum að læra að temja hesta en við sjálf erum með um 60-70 hesta fyrir norðan með öllu,“ segir Baltasar.
Við erum algerlega flutt þangað og krakkarnir ganga í skóla þarna. Þetta er besti staðurinn á jörðinni til þess að slaka á sem er mjög mikilvægt fyrir mig að gera inn á milli. Auðvitað vinn ég þarna í handritum og svona en það er ákveðið áreiti sem ég losna við. Veran þarna endurnærir mig mikið og heldur oft í mér lífinu,“ segir Baltasar.
Eilíft flakk gerir heimkomur hans enn mikilvægari í hvert skipti. „Þegar ég kem heim er ég bara með sonum mínum allan daginn og það verður okkur mikilvæg stund. Stundum reyni ég að taka syni mína með mér á settið. Ég tók annan til dæmis með mér til Bandaríkjanna þegar ég var í tökum þar,“ segir hann.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir