Hæsti turn heims er í Dúbaí en hvar er stærsta kirkjan, fótboltavöllurinn og styttan? DV tók saman nokkur risastór mannvirki sem ekki allir hafa endilega heyrt um. Öll eiga þau það sameiginlegt að vera með sérstöðu hvað stærð varðar.
Hæsti turninn
Dúbaí-turninn er langhæsta mannvirki heims eða um 818 metrar og var vígður á dögunum, þrátt fyrir að óvíst sé hvort einhver not séu fyrir hann. Fjármálamiðstöðin Dúbaí hefur orðið fyrir samdrætti vegna alþjóðlegu fjármálakreppunnar og telja sumir að hin gríðarstóra bóla er blásin var upp í furstadæminu muni springa með látum á næstunni. Í Dúbaí hafa stjórnvöld og stórfyrirtæki lagt allt kapp á að byggja sem hæst, stærst og lengst. Það er liður í að gera nafn Dúbaí frægt um allan heim.
Hafa margir bent á að gríðarstórar framkvæmdir í Dúbaí, þar á meðal Dúbaí-turninn, Dúbaí-verslunarmiðstöðin (sú stærsta í heimi) og skemmtigarðurinn Dúbaíland (stærstur í heimi), hafi ekkert notagildi í sjálfu sér og séu því ekkert annað en tilgangslaust tákn um völd sem kostað hafi gríðarlegar fjárhæðir.
Dúbaí er ekki eini staðurinn á jörðinni þar sem menn hafa keppst um að byggja hæst og stærst á undanförnum áratugum. Á síðustu árum hafa nýir ofurskýjakljúfar sprottið eins og gorkúlur víða um lönd, til dæmis í Taívan, Kína og Malasíu og hafa löndin tekið við af Bandaríkjamönnum sem á árum áður reistu hæstu skýjakljúfa heims. En hér á eftir er litið á nokkur mannvirki af öðru tagi sem eru stærst á sínu sviði.
Stærsta kirkja heims er á Fílabeinsströndinni
Yamoussoukro er stjórnsýslusetur og höfuðborg Fílabeinsstrandarinnar. Í borginni búa um 200.000 manns. Byggðin er strjál og lág, en stjórnvöld hafa reist nokkrar byggingar á síðustu áratugum sem skaga yfir íbúabyggðinni í Yamoussoukro. Stærsta byggingin er Frúarkirkjan en hún er stærsta kirkja heims. Frúarkirkjan er byggð í anda Péturskirkjunnar í Róm en er hærri og stærri. Gólfflötur kirkjunnar er um 30 þúsund fermetrar og hvolfþakið 158 metra hátt. Kirkjan var byggð á árunum 1985-1989 og blessaði Jóhannes Páll II páfi hana þegar hún var vígð árið 1990.
Stærsti fótboltavöllurinn er í Norður-Kóreu
Leikvangur „Rungrado-maí dagsins“ í Pyong Yang í Norður-Kóreu er stærsti íþróttaleikvangur heims. Hann tekur 150.000 áhorfendur í sæti og er aðallega notaður fyrir knattspyrnuleiki en hefur einnig verið vettvangur ýmissa flokkshátíða kommúnistastjórnarinnar. Völlurinn var vígður hinn 1. maí árið 1989. Knattspyrnulandslið Norður-Kóreu, sem leikur á HM í Suður-Afríku í sumar, leikur heimaleiki sína á vellinum. Í júní árið 2002 var gríðarlega umfangsmikil fimleikasýning haldin á vellinum en þátttakendur voru um hundrað þúsund manns og var því mannfjöldinn á vellinum um kvartmilljón. Sýningin var haldin til að draga athygli frá HM í knattspyrnu sem haldin var á sama tíma í Suður-Kóreu og Japan.
Stærstu styttur heims eru af Búdda
Búddastytta Vorhofsins í Lushan-héraði í Henan í Kína var reist árið 2002. Hún er stærsta stytta heims, 153 metrar að hæð með stöplinum, sem er rúm tvöföld hæð Hallgrímskirkju. Byggingarefnið er kopar en sagt er að um 1000 tonn af málminum séu í styttunni. Kínverjar ákváðu að byggja styttuna eftir að fréttist að talíbanar hefðu sprengt Bamiyan búddastytturnar fornu í Afganistan í loft upp, en Kínastjórn fordæmdi þær aðgerðir harkalega. Önnur stærsta stytta heims er í Mjanmar og sú þriðja stærsta er í Japan og báðar eru búddastyttur.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 






Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu