Meðfylgjandi mynd sýnir hinn tveggja ára gamla Cohen Stone sem á ótrúlegan hátt tókst að festast inn í sælgætisvél á veitingastað í Perth í Ástralíu.
Vélina sem um ræðir ættu allir að þekkja en hún gerir fólki kleift að stjórna vélknúinni kló í þeirri von að ná í sælgæti og í sumum tilfellum leikföngum. En Cohen Stone ákvað að fara styttri leiðina og tókst á einhvern hátt að klifra inn um litla lúgu á vélinni og festa sig þannig.
„Ég var búin að vera leika við hann í barnaherberginu en tók augun af honum í tvær mínútur. Þegar ég sneri mér við var hann kominn inn í vélina. Ég trúði ekki mínum eigin augum. Þetta var eins og töfrabragð,“ segir móðir drengsins, Kyra.
Litli snáðinn sat fastur í vélinni í um 45 mínútur og þurfti að kalla út lásasmið til að opna fyrir honum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung