Djöfladýrkendur í Yaroslavl í Rússlandi myrtu fjóra unglinga sumarið 2008 með því að stinga þá 666 sinnum. Fórnarlömbin, þrjár stúlkur og einn drengur á aldrinum 16 til 17 ára, voru síðan elduð og einhverjir líkamshlutar þeirra snæddir. Leiðtogi djöfladýrkendanna kallaði sig dr. Got.
„Velkomin á samkunduna okkar,“ tónaði dr. Got og horfði á unglingsstúlkuna og -strákinn. Þau voru stödd við garð inni í skógi í Yaroslavl í Rússlandi og hlýtt júníkvöldið gaf spennandi fyrirheit um það sem í vændum var. „Þetta er Karla, kærastan mín, og ykkur er boðið að vera viðstödd innvígslu hennar,“ sagði dr. Got og benti á allsnakta stúlku sem stóð við hlið hans.
Strangt til tekið höfðu unglingarnir tveir, Varya Kuzmina og Andrei Sorokin, ekki hugmynd um hvað stóð til og hvaða hlutverk þau áttu að leika í vígsluathöfninni, en sexmenningarnir sem stóðu að baki dr. Got virtust hinir vingjarnlegustu, jafnvel þó dr. Got hefði kynnt þá til sögunnar sem djöfladýrkendur. Þeir voru íklæddir svörtum leðurfatnaði, voru með svartar grímur, svartlakkaðar neglur og með gadda í nefi og eyrum.
„Bindið þau,“ skipaði dr. Got skyndilega og áður en Varya og Andrei vissu hvaðan á sig stóð veðrið var búið að binda hendur þeirra fyrir aftan bak. Dr. Got hóf að söngla eitthvert óskiljanlegt bull og einn félagi hans, sem kallaðist Graf, sveiflaði alblóðugum hnífi yfir höfðum dauðskelfdra ungmennanna. „Satan, við bjóðum Körlu velkomna með því að bjóða þér þessi tvö líf,“ tónaði dr. Got, og Graf stakk hnífnum á kaf í bringu Andreis.
Í þessum dimma skógi tókst Varyu, öskrandi en samt hálfmeðvitundarlausri, að losa sig úr fjötrunum og hlaupa sem fætur toguðu inn í myrkviðinn, en gengið var fljótt að ná henni. Þrjú úr genginu skáru hana á háls en hin tóku myndir með farsímum af dauðastríði hennar.
Það hryllilega var að kvöldið áður hafði dr. Got með fulltingi fylgismanna sinna lokkað tvær stúlkur, Önyu Gorokhova og Olgu Pukhova, með svipuðum hætti inn í skóginn. Báðar voru stúlkurnar myrtar með svipuðum hætti og Andrei og Varya.
Dr. Got dvelur nú á öryggisgeðsjúkrahúsi, en fylgismenn hans bíða dóms.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu