Fyrirsætan Kristrún Ösp Barkardóttir hefur verið mikið milli tannanna á fólki vegna sambands hennar við knattspyrnuhetjuna Dwight Yorke sem hún kynntist þegar hún var au pari á Englandi. Í helgarviðtali í DV lýsir Kristrún kynnum sínum af íslenskum karlmönnum sem hún segir að séu oft á tíðum ekki upp á marga fiska.
Aðspurð segir Kristrún íslenska karlmenn eiga séns í sig en hún segir að til þess verði þeir að kunna sig. „Ég var bara 18 ára þegar ég fór út og nýbyrjuð að deita svo mín fyrsta reynsla var af mjög kurteisum karlmönnum. Íslenskir karlmenn eru ekki að heilla mig og mín reynsla er sú að ef þér er boðið í glas hér heima þá ætlast þeir til þess að þú farir í rúmið með þeim. Svoleiðis hugsa þeir bresku ekki. Minn maður verður að vera góður við mig og hann verður að hugsa vel um sig og líta vel út. Ég hef alltaf heillast af íþróttamönnum en þeir verða að eiga sitt líf. Ég hef nóg að gera og vil hafa mitt „space“ og ætla ekki að breyta því þótt ég fari að vera með einhverjum manni.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar