ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Jesús Kristur á steikarpönnu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:45 › 14. mars 2010
Tilviljun eða Jesúm? Elles ætlar að geyma pönnuna og trúir hann því að hún muni vaka yfir honum.

Tilviljun eða Jesúm? Elles ætlar að geyma pönnuna og trúir hann því að hún muni vaka yfir honum.

„Ég steinsofnaði þegar ég var að steikja beikon. Þegar ég vaknaði þá blasti þetta fyrir mér, Jesús Kristur í öllu sínu veldi,“ segir hinn 22 ára gamli Toby Elles frá Salford á Englandi. Hann var hætt kominn á dögunum þegar hann sofnaði út frá eldamennskunni. Svo virðist vera sem einhver hafi vakað yfir honum.

„Þetta hefði getað endað illa. Ég vaknaði þegar íbúðin var orðin stútfull af reyk. Þegar ég fór og tók pönnuna af hellunni sá ég myndina,“ segir Elles en hann og félagar hans höfðu setið að sumbli á heimili hans um kvöldið.

Hann ákvað hins vegar að fá sér í svanginn fyrir svefninn og ákvað að setjast í sófann meðan beikonið var á pönnunni. Hann sofnaði hins vegar og vaknaði klukkutíma síðar þegar íbúðin var orðin full af reyk.

Að því er fram kemur á vef breska blaðsins Telegraph ákvað hann að þrífa ekki pönnuna eftir atvikið – hún hljóti að vera skýrt dæmi um mátt Jesú Krists. „Ég ætla að eiga pönnuna það sem eftir er. Hún mun vaka yfir mér hvert sem ég fer,“ segir þessi ungi Breti.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.