Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Breski kaupsýslumaðurinn Ayman Najafi og Charlotte Lewis eiga yfir höfði sér fangelsisvist í Dubai fyrir að kyssast á almannafæri í nóvember síðastliðnum. Það var 38 ára gömul móðir sem tilkynnti kossaflensið eftir að hafa séð parið kyssast á veitingastað við Jumeirah ströndina í Dubai.
Dómari í málinu vísaði frásögn Najafi á bug um að hann hefði aðeins kysst Lewis á vangann. Hann dæmdi parið því í mánaðarlanga fangelsisvist og að þau yrðu rekin úr landi eftir hana. Najafi er sagður í öngum sínum vegna málsins. Hann segir í samtali við breska dagblaðið Daily Mail að hann virði siðareglur í Dubai en neitar því þó harðlega að hafa kysst konuna á munninn líkt og hann er sakaður um.





Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu
Biblían bjargaði lífi hennar: Las fyrir árásarmanninn
Týndir þú skartgripum á höfuðborgarsvæðinu?
Sjáðu allar Super Bowl auglýsingarnar