Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Tvær fjöldagrafir fundust á dögunum í austurrísku borginni Graz. Er talið að í gröfunum sé að finna lík að minnsta kosti 70 manna sem myrtir voru af nasistum á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Grafirnar fundust undir knattspyrnuvelli í borginni sem austurrískir hermenn nota í frítíma sínum.
Að því er fram kemur í frétt breska blaðsins Telegraph er talið að nokkrir þeirra sem liggja í gröfunum hafi verið bandarískir orrustuflugmenn sem nasistar handtóku í seinna stríðinu.
Grafirnar komu í ljós þegar ljósmyndir frá bandarískum hermönnum fundust fyrir skemmstu en þær sýndu það þegar verið var að koma líkum fyrir í fjöldagröfunum.





Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu
Biblían bjargaði lífi hennar: Las fyrir árásarmanninn
Týndir þú skartgripum á höfuðborgarsvæðinu?
Sjáðu allar Super Bowl auglýsingarnar