Eitt mesta leyndarmál poppsögunnar og tilefni vangaveltna er lagið You're So Vain eftir söngkonuna Carly Simon. Lagið kom upphaflega út árið 1972 og fjallar um sjálfhverfan elskhuga sem Carly Simon segir að sé „svo hegómlegur“ að hann „haldi sennilega að lagið sé um hann“.
Síðan lagið kom út hefur spurningin um hvern lagið fjallar brunnið á fólki og hefur Carly sjálf kynnt undir með því að gefa litlar vísbendingar um svarið.
Í nýrri útgáfu lagsins sem kom út í ár á plötunni Never Been Gone er að sögn Carly að finna vísbendingu um elskuhugann hégómlega. „Ég ætla bara að segja þér þetta. Svarið er að finnaí nýrri útgáfu You're So Vain. Það er smá hvísl – og í því liggur svarið,“ sagði Carly Simon í viðtali við tímaritið Uncut.
Nauðsynlegt að spila hvíslið afturábak til að heyra hvað raunverulega er hvíslað og heyrist þá nafnið David. Enginn skyldi velkjast í vafa um að Carly leiðast eigi vangavelturnar sem lagið hefur valdið. Með nánast reglulegu millibili gefur hún upp vísbendingar sem leiða eiga fólk í sannleikann.
Árið 2003 upplýsti Carly um að bókstafurinn „E“ væri í nafninu. Fyrir hafði hún gefið upp stafinn „A“ og árið 2004 bættist þriðji stafurinn við - „R“. Ef ummæli Jims Hart, fyrrverandi eiginmanns henar frá 2005 eiga við rök að styðjast þá er lítil hjálp í vísbendingum Carly Simon. Hart sagði nefnilega lagið ekki fjalla um fræga persónu.
Í viðtali við CNN árið 2002 sagði Carly Simon að viðfangsefni hennar í You're So Vain kæmi fyrir í fleiri lögum. „Það eru alltaf vísbendingar í öðrum lögum. Náunginn kemur oft fyrir í lögunum mínum,“ sagði Carly.
Ljóst má telja að Carly leiðist ekki sá áhugi sem lagið hefur búið að í nánast fjóra áratugi og áhuginn nú hefur mikið auglýsingagildi.
Hafa nokkri menn verið nefndir sem eiga að vera yrkisefni Simon en sá sem hefur ávallt verið talinn líklegastur er leikarinn Warren Beatty. Beatty hefur sjálfur sagt lagið vera um sig og Simon hefur viðurkennt að lagið sé að hluta um hann. En Simon hefur áður sagt lagið fjalla í raun um þrjá menn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung