Starfið er sannkallað draumastarf fyrir alla letingja. Það eina sem viðkomandi þarf að gera er að borða og hreyfa sig lítið sem ekkert. Mynd Photos
Lyfjafyrirtækið Proactol, sem sérhæfir sig í framleiðslu á svokölluðum megrunarlyfjum, hefur auglýst eftir nýju starfsfólki. Starfið sem um ræðir er þó ekkert venjulegt - það felur í sér að sitja í þægilegum sófa allan liðlangan daginn og borða á sig gat.
Með þessu vill fyrirtækið kanna virkni á nýjasta megrunarlyfi sínu sem áætlað er að komi á markað á næstu mánuðum. Í atvinnuauglýsingu fyrirtækisins segir meðal annars, að það eina sem viðkomandi þurfi að gera, sé að borða um það bil 400 hitaeiningum meira en hann er vanur að gera með neyslu á ruslfæði. Og launin eru ekkert slor, eða rúmar 380 þúsund krónur á mánuði.
Þá eru skilyrði fyrir því að viðkomandi sé ekki á neinum megrunarkúr og borði nú þegar tiltölulega eðlilega, það er, borði mat þar sem hlutföll kolvetna, fitu og próteina eru samkvæmt manneldisráðleggingum.
Talsmaður fyrirtækisins segir í samtali við breska blaðið Telegraph að tilraunin muni gefa vísindamönnum fyrirtækisins betri vísbendingu um virkni lyfsins. Fullyrða forsvarsmenn fyrirtækisins að lyfið sé í raun töfralausnin sem alla offitusjúklinga dreymir um.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung