ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Bretar og Hollendingar hunsa Íslendinga

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:33 › 14. mars 2010
Steingrímur segir að unnið sé að því að koma á fundum við Breta og Hollendinga. Ekkert sé þó fast í hendi.

Steingrímur segir að unnið sé að því að koma á fundum við Breta og Hollendinga. Ekkert sé þó fast í hendi. Mynd Rakel Ósk Sigurðardóttir

Ágreiningur um grundvöll frekari viðræðna milli Íslendinga annars vegar og Breta og Hollendinga hins vegar hefur orðið til þess að engir fundir hafa verið boðaðir. Fyrir síðustu helgi lagði íslenska samninganefndin fram plagg sem átti að vera upplegg fyrir framhald viðræðna um lausn Icesave-deilunnar.

Að því er fram kom í kvöldfréttum RÚV voru hinsvegar fjölmargar athugasemdir gerðar og frekari viðræðum á grunvelli þess var hafnað. Þrátt fyrir þetta hafa óformleg samskipti verið síðustu daga við Breta og Hollendinga um lausn deilunnar þó engir fundir hafi verið formlega boðaðir.

Í fréttum RÚV var haft eftir Guðmundi Árnasyni, ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu sem einnig situr í samninganefndinni, að viðræðurnar hefðu tafist. Þá var haft eftir Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra að unnið sé að því að koma á fundum með Bretum og Hollendingum í þessari viku en ekkert sé fast í hendi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.