Fyrrverandi ástmaður söngvarans Eltons John svipti sig lífi með því að stökkva fyrir vöruflutningabifreið. Þetta átti sér stað áður en John kynntist núverandi elskhuga sínum, kvikmyndagerðarmanninum David Furnish, árið 2005.
Elton John og Furnish eru meðal þeirra sem koma að uppsetningu leikritsins Next Fall sem sýnt er í New York þessa dagana. Fjallar leikritið einmitt um samband samkynhneigðra karlmanna eftir slys og ákvað John að koma að leikritinu í ljósi reynslu sinnar.
„Ég hafði ekki hugmynd um það, að hann myndi gera þetta. Það var svo mikil sorg,“ segir Sir Elton í samtali við The Sunday Telegraph. Furnish segir í sama viðtali að ástmaður Eltons hafi gert þetta þar sem hann átti erfitt með að opinbera samkynhneigð sína og taldi að hún færi ekki saman við trúarskoðanir hans. Segir Elton John að sorgin í kringum lát mannsins, sem hann vill ekki nefna á nafn, hafi verið ástæða þess að hann ákvað að styðja uppsetningu verksins fjárhagslega.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung