Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar er ekki jafnerfitt að jafna sig eftir sambandsslit og allir væmnu söngvararnir halda fram. Mynd Photos
Samkvæmt amerískri rannsókn er ekki jafnerfitt að jafna sig eftir sambandsslit og segir í væmnu ástartextunum. Sálfræðingar fylgdust með hópi para og létu þau svara spurningalistum yfir margra mánaða skeið.
Í ljós kom að þeir ástföngnustu voru mest hræddir við sambandsslit og gátu ekki ímyndað sér lífið án makans. Vísindamennirnir komust hins vegar að því að sá hópur átti auðveldast með að jafna sig eftir ástarsorg. Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram að útkoma hennar styrki aðrar svipaðar rannsóknir sem bendi til þess að fólk eigi afar erfitt með að segja til um líðan sína við tilteknar ímyndaðar aðstæður.
Í tilfelli ástarsorgarinnar gleymdu þeir ástföngnustu að taka það góða við sambandsslitin með í reikninginn, líkt og kostina við að vera á lausu. „Við mannfólkið erum mun sterkari en við höldum þegar kemur að tilfinningalegu uppnámi,“ sagði Eli Finkel, prófessor í sálfræði við Northwestern's Weinberg-háskólann og annar höfundur skýrslu um rannsóknina. „Það er enginn að halda því fram að það sé gaman að hætta með einhverjum en okkar niðurstaða er sú að fólk jafnar sig mun betur og fyrr en það heldur.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu