ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.3° 7m/s ESE

3D-æðið skellur á

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:50 › 14. mars 2010
Alice. Þrívíddarmynd Tim Burton ætlar að slá öll aðsóknarmet.

Alice. Þrívíddarmynd Tim Burton ætlar að slá öll aðsóknarmet.

  • Avatar. Þrívíddarmyndin sem setti allt af stað.

    Avatar. Þrívíddarmyndin sem setti allt af stað.

Þrívíddartæknin hefur aldrei náð að festa virkilegar rætur þrátt fyrir aldargamla sögu í heimi kvikmyndagerðar. En vitjunartími þessarar áhugaverðu tækni er loks kominn ef marka má þær breytingar sem nú eru að verða í heimi kvikmynda og sjónvarps.

Sigurganga þrívíddarmyndarinnar Avatar, sem frumsýnd var í desember síðastliðnum, markar ákveðin tímamót í heimi afþreyingarmiðla. Ekki ólíkt því þegar hljóð kom fyrst í kvikmyndir eða litir tóku við af svarthvítu í sjónvarpi og kvikmyndahúsum. Avatar er þó að sjálfsögðu ekki fyrsta þrívíddarmyndin sem kemur fyrir almenningssjónir en hún staðfestir rækilega að þrívíddin er loks komin til að vera, markaðurinn hefur fest sig varanlega í sessi og framleiðendur skynja gífurlegan áhuga almennings að upplifa þessa skemmtilegu tækni. Þrívíddarmynd Tim Burton, Alice, sem frumsýnd var um síðustu helgi, ætlar að slá Avatar út í aðsókn, en þessa fyrstu sýningarhelgi rakaði myndin samanlagt inn um 210 milljónum Bandaríkjadala víðsvegar um heiminn.

Aldargömul tækni
Það er farið að nálgast heila öld síðan fyrsta stóra þrívíddarmyndin var gerð, The Power of Love, árið 1922. Kostnaður og erfiðleikar við framleiðslu og sýningar urðu þó til þess að þrívíddarmyndir festu aldrei rætur í kvikmyndaheiminum næstu áratugina. Það er ekki fyrr en á sjötta áratug síðustu aldar að hálfgert þrívíddaræði skall á í Bandaríkjunum og tugir slíkra kvikmynda litu dagsins ljós, einna frægust var Creature from the Black Lagoon. Á áttunda og níunda áratugnum urðu þrívíddarmyndir vinsælar á nýjan leik með tilkomu sérstakra kvikmyndahúsa á vegum IMAX og Disney-fyrirtækisins. Síðustu níu árin hafa þrívíddarmyndir stöðugt verið að ryðja sér til rúms og á síðasta ári voru hátt á annan tug slíkra mynda framleiddar. Margir spá því að þetta ár verði sögulegt því stærstu og dýrustu myndirnar verði flestar í þrívídd.

Þrívídd í sjónvarp
Áhugi almennings á að upplifa þrívídd heima í stofu hefur heldur ekki farið fram hjá sjónvarpsframleiðendum síðustu árin. Það sem hefur hins vegar vantað upp á er nægilegt úrval myndefnis til að réttlæta kaup hins hefðbundna neytanda á slíku tæki. En mörkunum virðist nú hafa verið náð, bæði hvað varðar úrval efnis og fyrirætlanir margra sjónvarpsstöðva á að hefja að einhverju leyti útsendingar í þrívídd. Til að byrja með verða það einna helst kvikmyndir og íþróttaviðburðir sem njóta þessarar tækni í sjónvarpi. Opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Vancouver var til dæmis send út í þrívídd en ólíklegt er talið að hefðbundið sjónvarpsefni njóti þessar tækni fyrr en hægt verður að framleiða tæki sem þarfnast ekki sérstakra gleraugna við áhorf. Slík tæki eru væntanleg á markað innan fimm ára.

Stefnt á jólin
Allir stærstu sjónvarpstækjaframleiðendur heimsins eru nú í óða önn að koma þrívíddarsjónvörpum á markað, Samsung og Panasonic eru leiðandi í markaðssetningunni og koma nokkrum útgáfum slíkra tækja í verslanir í þessari viku og mánuði. Þrívíddaræðið verður þó í hámarki fyrir næstu jól, enda flestir framleiðendur þá búnir að koma tækjum sínum á markað og úrval myndefnis hefur aukist. Yfir tuttugu þrívíddarmyndir verða frumsýndar á þessu ári en einnig verða eldri kvikmyndir endurgerðar fyrir þrívíddina. Talið er að hálfgerð sprenging verði í gerð þrívíddarefnis á næstu árum til að metta þann markað sem er að skapast.

Verð
Sérfræðingar spá því að þrívíddartæki muni yfirtaka markaðinn á næstu árum því tæknin sem liggur að baki þeim sé ekki kostnaðarsamari en við framleiðslu hefðbundinna viðtækja. Þrívíddargleraugun sem fylgja tækjunum séu helsti kostnaðaraukinn og þegar ný tæki án gleraugna komi á markað innan nokkurra ára komi verð á þessum tækjum til með að lækka.
Sem dæmi um verð á þrívíddarsjónvarpi býður Sony uppá 40" tæki á 411 þúsund krónur í Japan og Samsung er með fjölda stærða og gerða á bilinu 250 til 500 þúsund krónur í Bandaríkjunum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.