ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Stunginn í hálsinn á Shutter Island

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:30 › 13. mars 2010
Karlmaður var stunginn í hálsinn með kjöthitamæli á sýningu myndarinnar Shutter Island.

Karlmaður var stunginn í hálsinn með kjöthitamæli á sýningu myndarinnar Shutter Island.

  • Kjöthitamælir er ágætis eldhúsáhald.

    Kjöthitamælir er ágætis eldhúsáhald.

Karlmaður var stunginn í hálsinn með kjöthitamæli eftir að hann kvartaði yfir afar pirrandi bíógesti við sýningu stórmyndarinnar Shutter Island í Lancaster í Bandaríkjunum. Karlmaðurinn kvartaði yfir konu sem talaði í farsíma á meðan sýningu myndarinnar stóð.

Bað hann hana vinsamlegast um að hætta að tala í símann. Konan yfirgaf þá salinn ásamt tveimur karlmönnum. Skömmu seinna birtust karlmennirnir aftur og réðust á sýningargestinn. Var hann stunginn í hálsinn en aðrir sýningargestir komu honum til aðstoðar. Karlmaðurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem gert var að sárum hans en árásarmannanna er enn leitað.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.