Páll Óskar er ekkert að fara að slaka á. „Einhvern tímann lofaði ég mér að vera eins og May West sem var að troða upp þangað til hún var áttræð.“
„Mér hefur alltaf þótt fertugir karlmenn svo glæsilegir og jarðtengdir. Þá er maður líka búinn að afgreiða ýmislegt í lífinu og kominn með sjálfan sig á hreint. Ég er alveg ofsalega glaður og ánægður að hafa náð þessum áfanga en ég er ánægðastur með hvað ég lít vel út,“ segir Páll Óskar sem heldur upp á fertugsafmæli sitt í dag með risapartíi á Nasa.
Páll Óskar segir að hann sé pínu þakkláttur fyrir að þurfa enn að sýna skilríki þegar hann skellir sér út á lífið. „Það trúir því enginn að ég sé fertugur,“ segir Páll Óskar léttur sem fyrr og bætir við að hann sé sáttur við sig nú við þessi tímamót. „Já, að mörgu leyti og nú hlakka ég til því það er meira á leiðinni. Ég er ekkert að fara að slaka á. Ég ætla mér að lifa þangað til ég verð 111 ára og það er enn þá margt sem ég á eftir að gera í lífinu.
Ég á enn eftir að gera bíómynd - kvikmyndaáhugamaðurinn sjálfur, það er búið að vera lengi í kollinum á mér og mig langar svolítið að fara að undirbúa jarðveginn fyrir eitthvað þannig verkefni.“
Stórafmæli koma ekki á hverju ári og er Páll Óskar með þétta dagskrá um helgina þrátt fyrir að eiga ekki afmæli fyrr en á þriðjudag.„Fyrst maður er fertugur þá verður maður að halda upp á það. Þetta er í raun einfalt partí. Ég er að þeyta skífum, treð upp og syng og það kostar bara þúsund kall inn. Þannig að öll þjóðin má mæta,“ segir þessi mikli skemmtikraftur.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar