ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Nafnleysingjar kalla Bubba dópista og fávita

17:37 › 13. mars 2010
Bubbi Morthens er vanur svívirðingum í netheimum. Hann heldur að margir af þeim skrifa nafnlaust á netinu séu mjög veikir einstaklingar.

Bubbi Morthens er vanur svívirðingum í netheimum. Hann heldur að margir af þeim skrifa nafnlaust á netinu séu mjög veikir einstaklingar. Mynd Vera Pálsdóttir

  • Guðmundur Magnússon, ritstjóri Eyjunnar. Bubbi furðar sig á því að fjölmiðill á borð við Eyjuna skuli bjóða fólki upp á það að skrifa nafnlausar athugasemdir.

    Guðmundur Magnússon, ritstjóri Eyjunnar. Bubbi furðar sig á því að fjölmiðill á borð við Eyjuna skuli bjóða fólki upp á það að skrifa nafnlausar athugasemdir.Mynd Vera Pálsdóttir

„Ég held að margir af þessum nafnleysingjum á netinu séu mjög veikir einstaklingar sem ættu í rauninni að vera á lyfjum,“ segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens. Á vefmiðlinum Eyjunni er að finna mörg ósmekkleg ummæli um tónlistarmanninn vegna bloggfærslu hans um Davíð Oddsson og ábyrgð hans á efnahagshruninu.

Líkt og svo margir fjölmiðlar greindi Eyjan frá bloggfærslunni og hafa í kjölfarið sprottið upp fjörugar umræður á síðunni. Hver sem er getur látið skoðun sína í ljós án þess að koma fram undir nafni og er Bubbi meðal annars sagður vera dópisti og kjáni. „...Hann er nú ekki beittasti hnífurinn, verðum að finna til með honum, hvað skyldi hann vera að reykja?,“ segir einn nafnleysinginn. Annar segir: „Gamli dópistinn eða er hann það ennþá???????????“ og enn annar segir: „Bubbi er fáviti,er ekki að grínast,“ án þess að færa frekar rök fyrir máli sínu.

Í samtali við DV.is segist Bubbi þó vera vanur slíkur svívirðingum í netheimum. Hann fagnar því þó að greinin hans, sem fyrst birtist á vef Pressunnar, hafi vakið jafn mikið umtal og raun ber vitni. Hann segir að menn virðist ekki sjá eða skilja það sem hann sé að segja.

„Menn sjá ekki þessa heildarmynd. Heildarmyndin er sú, að það sem bankarnir gerðu, er afleiðing gjörða Davíðs Oddssonar. Jón Ásgeir ber ekki ábyrgð á hruninu, Jóhannes í Bónus ber ekki ábyrgð á hruninu. Enginn af þessum útrásarvíkingum ber ábyrgð á hruninu. Þetta eru sáðmenn sem fengu sáðkornin hjá Davíð Oddssyni og Sjálfstæðisflokknum. Og það er það sem ég er að skrifa um,“ segir hann.

Bubbi segir annars að ummælin um hann á vef Eyjunnar dæmi sig sjálf. Hann undrast það þó að fjölmiðill á borð við Eyjuna skuli bjóða fólki upp á að skrifa nafnlausar athugasemdir. „Þetta er athugunarvert í samfélagi okkar að síða eins og Eyjan skuli líða það að fólk fari nafnlaust þarna inn. Við erum öll manneskjur og mönnum gengur misjafnlega að taka skítnum; sumir höndla það ekki á meðan aðrir höndla það. Ég held að þeir sem reka Eyjuna ættu að skoða þetta vegna þess að þeir eru að leyfa ofbeldi á síðunni sinni. Ég tel þetta vera ofbeldi þegar menn fá að koma nafnlausir og segja og gera það sem þeir vilja,“ segir Bubbi.

Smelltu hér til að sjá frétt Eyjunnar.

Smelltu hér til að sjá bloggfærslu Bubba á Pressunni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.