„Það er í lagi að vera aðeins of þungur en þegar offitan er farin að hafa áhrif á heilsuna er það alvarlegt mál,“ segir Dr. Ársæll Már Arnarsson, dósent í sálfræði við Háskólann á Akureyri. Ársæll segir offitu barna vaxandi vandamál á Íslandi auk þess sem líkamsmynd þeirra, og sér í lagi íslenskra stúlkna, sé afar brengluð
Í viðamikilli rannsókn sem gerð var á tæplega 12 þúsund íslenskum nemendum í 6., 8. og 10. bekk af Rannsóknarsetri forvarna í HA kemur fram að línuleg fylgni er milli lífsánægju stúlkna og þyngdar þeirra. „Tvöfalt fleiri stelpur eru óánægðar með sig en strákar. Eftir því sem þær eru léttari því ánægðari eru þær. Ánægðustu stelpurnar eru ekki í kjörþyngd heldur undir kjörþyngd,“ segir Ársæll Már sem telur þróunina ógnvekjandi.
Ársæll segir nýlega bandaríska rannsókn sýna fram á 16% aukningu á meðal of feitra barna. „Ég er viss um að það sama sé uppi á teningnum hér á landi. Börn eru mun feitari í dag en þau voru hér áður fyrr og stórir hópar barna eru að greinast með áunna sykursýki, eitthvað sem við héldum að væri sjúkdómur miðaldra karlmanna,“ segir hann og bætir við að foreldrar, skólar, íþróttafélög og löggjafinn þurfi að taka höndum saman gegn þessari þróun. „Máltíðir í skólum eru ekki alltaf til að hrópa húrra fyrir og löggjafinn þarf líka að taka sig á. Hvernig væri til dæmis að taka virðisaukaskattinn af ávöxtum og grænmeti?“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir