ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Lagfærir byggingar með legó-kubbum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:30 › 13. mars 2010
Þýski listamaðurinn Jan Vormann hefur varið síðastliðnum þremur árum í að lagfæra gamlar byggingar víðsvegar um heiminn með legó-kubbum.

Þýski listamaðurinn Jan Vormann hefur varið síðastliðnum þremur árum í að lagfæra gamlar byggingar víðsvegar um heiminn með legó-kubbum.

Þýski listamaðurinn Jan Vormann hefur varið síðastliðnum þremur árum í að lagfæra gamlar byggingar víðsvegar um heiminn með legó-kubbum. Hann segist hafa notað um þúsund slíka kubba til að lagfæra bygginar og hefur athafnað sig meðal annars í Tel Aviv og New York.

Gjörningurinn hefur vakið athygli þeirra sem hann sjá. Segir hann gjörninginn vera til þess að vekja athygli fólks á hrörlegu ástandi sögufrægra bygginga. Þegar fólk sér litríku kubbana í skemmdum á húsum vakni þörf hjá þeim til að gera við byggingarnar.

Segir hann áhrifaríkasta verkið sitt hafa verið framkvæmt í heimaborg sinni Berlín í Þýskalandi. Þar fyllti hann holur í byggingu eftir sprengingar frá seinni heimstyrjöldinni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.