ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Íhugar riftun hjá Sævari

20:05 › 13. mars 2010
Verður spurður. Sævar segir ekkert leikrit í gangi og að engar skuldir séu skildar eftir í gamla rekstrarfélaginu. Í skýrslutöku hjá skiptastjóra mun hann þurfa að skýra kennitölubreytingu fyrirtækisins.

Verður spurður. Sævar segir ekkert leikrit í gangi og að engar skuldir séu skildar eftir í gamla rekstrarfélaginu. Í skýrslutöku hjá skiptastjóra mun hann þurfa að skýra kennitölubreytingu fyrirtækisins.

„Það eru kröfuhafar sem ráða ferðinni. Ef þarna hefur verðmætur rekstur verið færður undan, án endurgjalds, þá eru það vissulega hagsmunir fyrir búið. Ég mun spyrja Sævar sérstaklega út í það,“ segir Grétar Dór Sigurðsson, skiptastjóri þrotabús Sævars Jónssonar knattspyrnuhetju.

Sævar færði í nóvembermánuði rekstur skartgripa- og úraverslunar sinnar, Leonard, yfir á nýja kennitölu þar sem stjórnartaumarnir voru færðir yfir á hendur eiginkonu hans, Helgu Daníelsdóttur. Í stað þess sem áður var, í hinu gamla rekstrarfélagi, kemur nafn Sævar hvergi fyrir á pappírunum en hann hefur sjálfur verðið úrskurðaður gjaldþrota. Í samtali við DV sagði hann kennitölubreytinguna ekki hafa verið gerða til að skilja eftir skuldir þó svo að með henni hafi hann viljað forðast að missa fyrirtækið.

Grétar Dór segir vinnuna við þrotabúið vera rétt að byrja þar sem innköllum krafna hafi verið auglýst og næsta skref verði að meta eignasöguna. Aðspurður segir hann hugsanlega útlit fyrir að þannig sé verið að koma eignum út úr þrotabúinu. „Jú, það kann að vera og við eigum eftir að fara yfir þetta. Ég á eftir að taka skýrslu af Sævari og þar verður farið yfir þennan gjörning út frá lögum um gjaldþrotaskipti. Ef þessar ráðstafanir eru riftanlegar er hugsanlegt að sú krafa verði lögð fram og það verður skoðað þegar allra kröfur hafa komið fram,“ segir Grétar Dór.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.