Tveir toppar hjá Capacent hafa verið ráðnir í störf sem fyrirtækið sá um ráðninguna á fyrstu mánuðum ársins 2010. Mynd Sigtryggur Ari Jóhannsson
Skúli Skúlason, einn eigenda ráðningarfyrirtækisins Capacent var ráðinn í starf sviðsstjóra þjónustusviðs Orkuveitu Reykjavíkur í byrjun febrúar. Capacent sá um ráðninguna í starfið og var Skúli starfsmaður og einn eigenda Capacent þegar hann var ráðinn í starfið.
Heimildir DV herma að um 280 hafi sótt um starfið sem Skúli var ráðinn í. Hann er með BS próf í viðskiptafræði og starfaði áður hjá Reykjavíkurborg.
Á miðvikudaginn sagði DV frá því að Capacent hefði séð um ráðningu kúlulánþegans Magnúsar Bjarnasonar í starf framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunar Landsvirkjunar sem tilkynnt var um á mánudaginn var. Magnús starfaði líkt og Skúli hjá Capacent þegar hann var ráðinn í starfið. Magnús skuldar skilanefnd Glitnis 640 milljónir króna vegna kúluláns sem hann fékk til hlutabréfakaupa í Glitni meðan hann var framkvæmdastjóri hjá bankanum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun