Bubbi Morhens segir feðgana Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannsson, kennda við Bónus, ekki bera ábyrgð á efnhagshruninu á Íslandi. Segir hann Davíð Oddsson, núverandi ritstjóra Morgunblaðsins, bera ábyrgð á hruninu. Bubbi segir Davíð hafa fellt Ísland með því að yfirtökunni á Glitni.
„Þetta er maður sem keyrði Glitni í þrot út af blindum hefndarþorsta. Líkt og miðlungs skákmaður sem sá ekki nema einn leik fram í tímann og þar af leiðandi hrönnuðust upp afleikirnir. Sagan segir að menn hafi varað hann við og sagt kerfishrun; það verður kerfishrun og allsherjar upplausn.
Hann á að hafa svarað: Það verður að stoppa þessa menn. En hvað með fólkið í landinu? var þá spurt. Hann á að hafa svarað: Það reddar sér. Helgina sem hann keyrði Glitni í þrot felldi hann íslenska hagkerfið,“ ritar Bubbi á Pressubloggi sínu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna