Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur á undandörnum mánuðum eytt milljónum króna í að kenna starfsfólki hvernig á að nota netsamfélagssíður á borð við Facebook, Twitter og Bebo. Síðan í nóvember hafa 69 slík námskeið verið haldin og hafa 476 manns setið námskeiðin.
Þetta hefur vakið talsverða athygli í Bretlandi þar sem hver sem er getur skráð sig á Facebook og finnst flestum tiltölulega auðvelt að læra á vefsíðuna sem þykir notendavæn. Philip Davies, þingmaður breska íhaldsflokksins, segir að málið sé dæmi um það að breska ríkisútvarpið hafi úr of miklu fjármagni að ráða.
BBC hefur hinsvegar snúist til varnar og fullyrða menn þar á bæ að námskeiðin kenni starfsfólki að „þróa með sér áhrifaríka og þægilega leið til upplýsingaöflunar á netinu.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung