Þegar kínverska háskólastúlkan Zhang Mengqian ákvað að auglýsa eftir kærasta í skólanum sínum bjóst hún ekki við að þúsundir samnemenda hennar myndu sýna henni áhuga. Sú varð hinsvegar raunin þegar allt að tvö þúsund karlar komu saman fyrir utan íbúð hennar til að heilla hana upp úr skónum.
Mengqian stundar nám í rafmagns- og tækniháskólanum í Chengdu-héraði í Kína. Áhugi karlkyns samnemenda hennar er kannski skiljanlegur, í fyrsta lagi þar sem Mengqian er gullfalleg stúlka og í öðru lagi þar sem karlar eru í miklum meirihluta, eða 25 á móti hverri stúlku.
Henni datt það snjallræði í hug að auglýsa eftir myndarlegum manni og hvatti áhugasama til að koma fyrir utan íbúð sína á tilteknum tíma fyrr í vikunni. Til að sýna sig þurftu þeir svo að hrópa nafn hennar hátt og snjallt. Eins og meðfylgjandi mynd sýnir sýndu henni fjölmargir áhuga, eða vel á annað þúsund að talið er. Örfáir þorðu hinsvegar að hrópa nafn hennar. Ekki fylgir sögunni hver sá heppni var.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung