Hertoginn af Edinborg ferst besta að tjá sig sem minnst. Philip prins virðist í það minnsta ekki getað opnað á sér munninn án þess að segja einhverja bölvaða vitleysu og nýjasti stórsigur hans í klúðrinu kom á dögunum þegar hann ræddi við Elizabeth Rendle, konu í breska sjóhernum.
Prinsinn var að heimsækja æfingabúðir sjóhersins í Exeter í gær ásamt drottningunni þegar hann spurði Rendle hvað hún ynni við þegar hún væri ekki í sjóhernum.
„Ég sagði honum að ég ynni á klúbbi og hann spurði um hæl hvort það væri strípibúlla,“ segir Rendle við breska fjölmiðla í dag sem gera sér mat úr enn einu misstigi hins 88 ára gamla prins.
Rendle segir að hún og vinir hennar hafi hlegið að spurningu Philips.
Hún segist telja að prinsinn hafi verið að grínast og að hún hafi ekki verið móðguð.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung