ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Nánast fullkominn glæpur: „Eins og úr Hitchcock mynd“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:23 › 12. mars 2010
Alfred Hitchcock var þekktur fyrir hugmyndaflug sitt sem leikstjóri. Fléttan í morðmálinu í Freiburg minnir óneitanlega á myndir leikstjórans.

Alfred Hitchcock var þekktur fyrir hugmyndaflug sitt sem leikstjóri. Fléttan í morðmálinu í Freiburg minnir óneitanlega á myndir leikstjórans.

55 ára gömul kona frá Freiburg í Þýskalandi hefur verið ákærð fyrir þaulskipulagt morð á eiginmanni sínum. Er talið að konan, hin 55 ára gamla Waltraud Hill, hafi borgað öðrum manni talsverða upphæð fyrir að þykjast vera látinn eiginmaður sinn allt í þeim tilgangi að hafa af honum eignir, hlutabréf og reiðufé.

Það var í október á síðasta ári sem tilkynnt var um hvarf hins 71 árs gamla Hermann Hill. Hill þessi var vellauðugur eftir að hafa rekið útgerðarfyrirtæki í bænum Kappen-Grafenhausen sem er í nágrenni Freiburgar. Í fyrstu rannsakaði lögreglan málið sem mannshvarf og lék enginn grunur um að maðkur væri í mysunni – ekki fyrr en ekkjan reyndi að leysa út eigur hans.

Síðan þá hefur rannsóknarlögreglan í Freiburg rannsakað málið og viðað að sér upplýsingum. Er talið að ekkjan hafi leitað til tíu karlmanna og beðið þá um að þykjast vera eiginmaður sinn. Svo fór að einn gekk að tilboði ekkjunnar og réði hún í kjölfarið til sín förðunarfræðing til að láta viðkomandi líta nákvæmlega eins út og eiginmaður hennar.

Eftir að ekkjan fór með manninum óþekkta til að fá eignirnar borgaðar út hafði lögreglan samband við hana. Vildi hún grennslast fyrir um málið og var hún og eiginmaður hennar boðuð í viðtal nokkrum dögum síðar. Sagði hún lögreglu að eiginmaður sinn hafi birst skyndilega á heimili þeirra en þau gætu ekki komið í viðtal þar sem hann hefði farið úr landi. Nokkru síðar, eða þegar eiginmaðurinn átti að vera kominn heim, voru þau boðuð aftur í viðtal, en þá sagði konan að hann hefði aftur látið sig hverfa. Hófst þá rannsókn málsins fyrir alvöru.

Þó svo að bráðum sé liðið hálft ár frá hvarfi Hermanns hefur hvorki tangur né tetur fundist af honum. Grunar lögreglu sterklega að konan hafi komið honum fyrir kattarnef í þeim tilgangi að fá eignir hans borgaðar út. „Hún hélt að hún væri að fremja hinn fullkomna glæp og haldið að enginn mundi spyrja spurninga um það, hvers vegna hann hvarf, kom svo aftur til að skrifa undir pappíra, áður en hann lét sig hverfa aftur,“ segir talsmaður lögreglu og líkir málinu við eitthvað sem aðeins myndi gerast í bíómynd eftir Alfred Hitchcock.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.