ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Lokað á íslensk hótel og gistiheimili vegna Icesave

17:17 › 12. mars 2010
  • Maria Hedman fékk þau svör að lokað væri á íslensk gistiheimili og hótel á booking.com af pólitískum ástæðum.

    Maria Hedman fékk þau svör að lokað væri á íslensk gistiheimili og hótel á booking.com af pólitískum ástæðum.

  • Booking.com: Lokað á Ísland.

    Booking.com: Lokað á Ísland.

Ein stærsta bókunarsíða veraldar booking.com hefur lokað á nýskráningar íslenskra gistiheimila og hótela. Ástæðuna segir Maria Hedman, sem reyndi að skrá gistiheimilið Fitjar-Gisting, vera að yfirmenn síðunnar sem sjá um Ísland séu breskir og hollenskir og Icesave-deilan sé orsökin.

Maria segir í samtali við DV.is að hún hafi sótt um skráningu Fitjar í febrúar síðastliðnum að beiðni Guðjóns Halldórssonar eiganda Fitjar. Hún hafi hins vegar engin svör fengið. Hún hafi farið að skoða hvernig útibúin hjá booking.com væru og sá að þeir eru með útibú í Stokkhólmi. Maria, sem sjálf er sænsk, segir að þetta hafi verið ánægjulegt fyrir hana því þá gæti hún kannski fengið svör á móðurmálinu.

Lokað á Íslendinga -loðin svör um meint vanskil
„Ég sendi beiðni, með skráningarupplýsingum okkar, til Stokkhólms til að spyrjast fyrir um hvort ég þyrfti að gera eitthvað meira til að komast á síðuna. Ég fæ svar þar sem mér er sagt að pósturinn verði áframsendur á íslenskan tengilið sem ég hringi síðan í í morgun.“

Maria segir fyrst um sinn hafa fengið loðin svör um að búið væri að loka á nýskráningar á síðunni frá Íslandi vegna þess hversu illa íslensku viðskiptavinirnir hefðu staðið í skilum við síðuna.

„Ég spyr hvort það sé vegna þess að erfitt hafi verið að senda peninga úr landi eftir hrun. Hún segir mér að það hafi ekki verið vandamálið í rauninni, þessi ákvörðun hafi bara verið tekin af yfirstjórninni.“

Yfirmennirnir breskir og hollenskir; Icesave ástæðan
Maria kveðst hafa spurt hvort ekki væri eðlilegast að loka á þá sem ekki borguðu og leyfa nýjum aðilum að koma inn. „Stúlkan, sem er íslensk, segir að sér þyki þetta afar leitt enda vilji hún hjálpa íslenskum viðskiptavinum. „Ég skal bara segja þér afhverju þetta er,“ segir hún: „Framkvæmdastjórinn er breskur og næsti yfirmaður minn er Hollendingur svo þú getur ímyndað þér afhverju þetta er: Icesave““

„Ég átti ekki til orð að búið væri að loka á íslensk viðskipti við stærstu bókunarsíðu veraldar vegna þessara Icesave-deilu,“ segir Maria. Hún hafi þá fengið þau svör að Fitjar yrði sett á biðlista um óákveðinn tíma.

Eins og staðan er í dag er fjöldi íslenskra gistiheimila og hótelfyrirtækja skráð á booking.com, en það eru gamlar skráningar.

Skaðar íslenska ferðaþjónustu
Guðjón Halldórsson, eigandi Fitjar-Gisting, segir í samtali við DV.is að þetta mál sé með ólíkindum.

Hann segir þessa staðreynd að búið sé að loka á nýskráningar íslenskra fyrirtækja á síðunni hljóti að skaða íslenska ferðaþjónustu. „Þetta hlýtur að valda fleirum vandræðum en okkur,“ segir Guðjón.

Hann segir Fitjar aldrei hafa verið skráð á booking.com en hann hafi heyrt að slík skráning gæfist vel og því viljað prófa. Hann hafi því falið Mariu að skrá gistiheimilið á síðuna.

„Afhverju ekki bara að loka á þá sem ekki borga? Það ætti að vera einföld aðgerð ef menn standa ekki í skilum þá detta þeir bara út af síðunni og verða síðan rukkaðir. Sjálfur hefði ég ætlað að allar þóknunargreiðslur yrðu sjálfkrafa í gegnum síðuna þar sem booking.com tekur 15-20% þóknun. En að loka á allar íslenskar skráningar er annarskonar ráðstöfun,“ segir Guðjón að lokum.

Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, hafði ekki heyrt af málinu þegar DV hafði samband við hana vegna málsins í dag og gat því ekki tjáð sig um það að svo stöddu. Hún sagði að það yrði skoðað eftir helgi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.